Kæru meðliminir AMIGOS
Nú er staðan orðin þannig að ég get ekki lengur setið á orðum
mínum. Það eru því miður nokkrir meðlimir sem að eru alls ekki að
standa sig í blogginu.
Þá er ég ekki að tala um að fólk þurfi að koma með 2 bls langar
færslur á hverjum degi, heldur að það fólk getur hent inn nokkrum
línum í kommentum og færslu svona allavegana einu sinni í
mánuði.
Það eru því miður bara nokkrir sem að geta skráð sig sem
notendur og fá þannig aðgang að því að skrifa færslur. Sá aðgangur
er orðinn fullur núna og því geta sumir (t.d ÉG) ekki fengið
aðgang. Ég þarf alltaf að skrifa undir nafni MARIÖNNU (takk kærlega
fyrir að treysta mér fyrir lykilorðinu þínu).
Það er þvi kominn tími á vortiltekt hérna á síðunni og gef ég
þér lesandi góður sem ert hluti af Amigos 1-2 vikur að koma
sterk/ur aftur inn. Annars verður þér hent út svo að aðrir og
duglegri notendur geti látið ljós sitt skína.
Ef einhver er mótfallinn þessu þá verður sá hinn sami að eiga
það við mig......örugglega ekki margir sem að þora því. Til að
forðast öll leiðindi þá er bara að dusta af fingrasetningunni og
galdra fram eitthvað skemmtilegt efni.
Með fyrirfram þökk
f.h þeirra sem hafa fengið sitt fullsadda
Eva Margrét Kristinsdóttir aka marianna (en breytist vonandi
bráðum)
p.s ef að þér fannst þetta leiðinleg færsla þá þykir mér það
leitt
p.p.s það er um að gera að láta þetta berast svo að einhverjum
verði ekki hent út án sinnar vitneskju